Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 15. mars 2021 13:30
Elvar Geir Magnússon
Tuttosport: Zlatan verður á bekknum gegn Man Utd
Zlatan Ibrahimovic er 39 ára
Zlatan Ibrahimovic er 39 ára
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic, sóknarmaður AC Milan, ætti að vera á varamannabekknum í leiknum gegn Manchester United á fimmtudaginn.

Tuttosport greinir frá þessu en blaðið segir að Svíinn, sem hefur verið á meiðslalistanum undanfarna leiki, hafi farið í skoðun sem hafi komið vel út.

Fyrri viðureignin á Old Trafford endaði 1-1 en Zlatan gat ekki tekið þátt í þeim leik gegn sínu fyrrum félagi vegna meiðsla sem hann hlaut í 2-1 sigurleik gegn Roma í ítölsku A-deildinni.

Hann hefur alls misst af þrettán leikjum í ítölsku deildinni vegna meiðsla.
Athugasemdir
banner
banner
banner