mán 15. mars 2021 20:20
Ívan Guðjón Baldursson
Zidane um Ronaldo: Já, hann gæti komið aftur
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, gaf kost á sér í stutt viðtal við Sky Sport á Ítalíu í dag.

Þar ræddi hann ýmsa hluti og meðal annars möguleg félagaskipti Cristiano Ronaldo frá Ítalíumeisturum Juventus.

„Já, hann gæti verið sannur," svaraði Zidane þegar hann var spurður út í orðróminn sem segir Ronaldo vera á leið aftur til Real Madrid.

„Við þekkjum Cristiano vel en hann er leikmaður Juventus sem stendur og okkur ber að virða það, hann er að spila fyrir annað félag.

„Núna verðum við að bíða og sjá hvað framtíðin ber í skauti sér."


Ronaldo er 36 ára gamall og einn af bestu knattspyrnumönnum sögunnar sem fór í sögubækurnar fyrir afrek sín með Manchester United, Real Madrid og portúgalska landsliðinu.

Hann hefur skorað 95 mörk í 122 leikjum með Juventus og er samningsbundinn félaginu út næstu leiktíð.

Það var draumur Ronaldo að vinna Meistaradeildina með Juve en hingað til hefur gengið herfilega í útsláttarkeppninni. Juve hefur dottið út gegn Ajax, Lyon og Porto síðustu þrjú ár.
Athugasemdir
banner
banner
banner