Denis Suarez, leikmaður Arsenal á Englandi, er ekki í hópnum hjá liðinu í kvöld gegn Watford í ensku úrvalsdeildinni en margir furðuðu sig á því.
Suarez kom til Arsenal á láni frá Barcelona í janúar en hefur átt í erfiðleikum með að brjóta sér leið í liðið.
Spánverjinn hefur aðeins spilað 67 mínútur í fjórum leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni og er ekki í hópnum í kvöld.
Enskir miðlar hafa þó greint frá því að ástæðan fyrir því að hann er ekki með Arsenal í kvöld sé af því hann hefur verið að glíma við meiðsli í nára.
Hann gæti þó mætt aftur í leikmannahópinn er Arsenal mætir Napoli í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar á fimmtudag.
Athugasemdir