þri 15. maí 2018 22:54
Ívan Guðjón Baldursson
Balotelli á leið til Marseille
Mynd: Getty Images
Ítalskir og franskir fjölmiðlar keppast við að greina frá því að Mario Balotelli sé á leið til Olympique Marseille.

Balotelli hefur gert góða hluti sem fremsti maður Nice undanfarin ár fær nú tækifæri til að sanna sig á stærra sviði.

Tancredi Palmeri, fréttamaður Tuttomercatoweb, segist einnig hafa öruggar heimildir fyrir því að Balotelli verði valinn í fyrsta landsliðshóp Roberto Mancini á mánudaginn.

Balotelli er aðeins 27 ára gamall og býr yfir gífurlegri reynslu, en hann hefur skorað 13 mörk í 33 landsleikjum.

Balotelli hefur á ferlinum verið í lykilhlutverki hjá Inter, Manchester City og AC Milan, en hann fór til Nice eftir tvö slæm tímabil hjá Liverpool og Milan.

Hjá Nice hefur Balotelli gert 33 mörk í 50 deildarleikjum og verður áhugavert að sjá hvort hann passi í hópinn hjá Marseille.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner