mið 15. maí 2019 18:18
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Víkings og Stjörnunnar: Guðmundur Andri beint inn
Jósef byrjar.
Jósef byrjar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Reykjavík og Stjarnan eigast við í 3. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Það er verið að klára gervigraslögn og framkvæmdir á Víkingsvellinum og á meðan spilar liðið heimaleiki sína á Eimskipsvellinum, heimavelli Þróttar.

Víkingar eru með tvö stig; liðið gerði jafntefli í leikjum sínum gegn Val og FH en tapaði í síðustu umferð á sannfærandi hátt gegn Breiðabliki.

Stjarnan er með fimm stig, jafntefli gegn KR og Grindavík og svo sigur gegn HK í síðasta leik 1-0 þar sem Hilmar Árni Halldórsson skoraði glæsimark.

Beinar textalýsingar:
19:15 Víkingur R. - Stjarnan
19:15 ÍA - FH
19:15 KA - Breiðablik

Sóknarmaðurinn ungi Guðmundur Andri Tryggvason kemur beint inn í byrjunarlið Víkings og Jósef Kristinn Jósefsson byrjar hjá Stjörnunni en hann hefur verið að glíma við meiðsli.

Byrjunarlið Víkings:
1. Þórður Ingason (m)
5. Mohamed Dide Fofana
6. Halldór Smári Sigurðsson
8. Sölvi Ottesen (f)
11. Dofri Snorrason
20. Júlíus Magnússon
21. Guðmundur Andri Tryggvason
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
23. Nikolaj Hansen
24. Davíð Örn Atlason
77. Atli Hrafn Andrason

Byrjunarlið Stjörnunnar:
1. Haraldur Björnsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
3. Jósef Kristinn Jósefsson
7. Guðjón Baldvinsson
8. Baldur Sigurðsson (f)
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
12. Heiðar Ægisson
19. Martin Rauschenberg
20. Eyjólfur Héðinsson
29. Alex Þór Hauksson

Beinar textalýsingar:
19:15 Víkingur R. - Stjarnan
19:15 ÍA - FH
19:15 KA - Breiðablik
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner