Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 15. maí 2020 10:30
Magnús Már Einarsson
Barton vill byrja að spila - Andleg heilsa í húfi
Joey Barton.
Joey Barton.
Mynd: Getty Images
Joey Barton, stjóri Fleetwood Town, vill að fótboltinn fari af stað á Englandi sem allra fyrst.

Enska úrvalsdeildin stefnir á að hefja leik aftur í júní og verið er að skoða stöðuna í neðri deildunum.

Ýmsir leikmenn hafa stigið fram og lýst yfir áhyggjum af því að byrja strax vegna kórónaveirunnar. Þar á meðal eru Glenn Murray framherji Brighton og Troy Deeney framherji Watford.

„Glenny Murray og Troy Deeney eru í fallbaráttu. Ef þeir vilja ekki spila þá skil ég það. Ekki spila þá. Verið heima. Það er mikið af ungum leikmönnum hjá Brighton/Watford sem vilja ólmir fá tækifæri til að berjast við að bjarga félögum sínum," sagði Barton.

„Það verða alvarleg andleg vandamál ef við byrjum ekki með 'venjulegt líf' fljótlega fyrir marga af ungu atvinnumönnunum okkar. Covid 19 er ekki eina heilsufarsvandamálið sem við erum að eiga við."
Athugasemdir
banner
banner
banner