Guðmundur Benediktsson verður þáttastjórnandi Pepsi Max-markanna á Stöð 2 Sport í sumar en þetta var kynnt í þættinum Sportið í dag.
Hörður Magnússon hefur verið stjórnandi þáttarins í áraraðir en Guðmundur tekur nú við starfinu.
Hörður Magnússon hefur verið stjórnandi þáttarins í áraraðir en Guðmundur tekur nú við starfinu.
Nýir sérfræðingar koma inn í hópinn í bland við sérfræðinga sem voru í fyrra.
Tómas Ingi Tómasson snýr meðal annars aftur í Pepsi Max-mörkin eftir langt hlé og Hjörvar Hafliðason kemur einnig aftur eftir hlé.
Davíð Þór Viðarsson, fyrrum fyrirliði FH, er nýr sérfræðingur í hópnum en hann lagði skóna á hilluna síðastliðið sumar. Sigurvin Ólafsson er einnig nýr í sérfræðingahópnum.
Gummi Ben stýrir Pepsi Max-mörkunum eftir síðasta leik í hverri umferð. Kvöldið áður verður Kjartan Atli Kjartansson með sérstakan markaþátt úr fyrstu leikjum umferðarinnar.
Sérfræðingar Pepsi Max markanna í sumar
Atli Viðar Björnsson
Davíð Þór Viðarsson
Hjörvar Hafliðason
Reynir Leósson
Sigurvin Ólafsson
Tómas Ingi Tómasson
Þorkell Máni Pétursson
Athugasemdir