Fjögur félög í ensku úrvalsdeildinni eru á eftir Milot Rashica sóknarmanni Werder Bremen.
Aston Villa, Brighton, West Ham og Wolves eru öll sögð vilja fá þennan 23 ára gamla leikmann í sínar raðir í sumar.
Rashica hefur áður verið orðaður við Liverpool en kaupin á Takumi Minamino í janúar verða líklega til þess að toppliðið reynir ekki við hann.
Rashica hefur skorað sjö mörk í tuttugu leikjum í þýsku úrvalsdeildinni og vakið athygli.
Auk ensku félaganna vilja þýsku félögin Borussia Dortmund og RB Leipzig fá hann í sínar raðir.
Athugasemdir