Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 15. júní 2018 18:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gummi Ben tilkynnti mark áður en Ronaldo skoraði
,,Ertu til í að lækka aðeins í skyggnigáfunni hjá þér svo við getum notið leiksins?
Ronaldo er búinn að koma Portúgal yfir.
Ronaldo er búinn að koma Portúgal yfir.
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo er búinn að koma Portúgal yfir í stórleiknum gegn Spánverjum á HM.

Það tók Ronaldo aðeins fjórar mínútur af skora af vítapunktinum. Hann fiskaði sjálfur vítapsyrnu og skoraði af miklu öryggi fram hjá David de Gea, markverði Manchester United.

Þetta er 82. landsliðsmark Ronaldo sem er að spila á sínu fjórða Heimsmeistaramóti.

Leikurinn er sýndur á RÚV en markið hjá Ronaldo truflaði marga sem eru að horfa á leikinn þar sem hljóð og mynd voru ekki í takti. Guðmundur Benediktsson, sem lýsir leiknum, var búinn að segja frá því að Ronaldo hefði skorað þegar hann var enn í tilhlaupinu.

Vonandi kippir RÚV þessu í laginn sem fyrst en leikurinn hófst klukkan 18:00 og er ekki mikið búið af honum.
















Athugasemdir
banner
banner
banner
banner