Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 15. júní 2018 11:17
Magnús Már Einarsson
Hlustaðu á íslenska HM lagið frá DJ Muscleboy
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Egill Gillz Einarsson, DJ Muscleboy, hefur gefið ú vöðvamesta HM lag sögunnar sem ber nafnið #VIKINGCLAP.

Hægt er að hlusta á lagið og horfa á skemmtileg tónlistarmyndband hér að neðan.

Lagið #Vikingclap vinnur Muscleboy í samstarfi við þýsku rafgrúbbuna Bodybangers og útkoman er einfaldlega stórkostleg.

Muscleboy biðlaði til íslensku þjóðarinnar að senda inn skemmtilegar víkingaklapps-klippur og þjóðin varð heldur betur við kallinu.

Muscleboy gerði sitt allra besta til að koma sem flestum fyrir í myndbandinu.

Þetta er ekki fyrsta lag Muscleboy en lagið Louder náði þeim einstaka árangri að vera 8 vikur á toppi íslenska listans.

„Ástæðan fyrir laginu er einföld - Muscleboy hefur séð mikið af fólki útum allan heim framkvæma víkingaklappið vitlaust og fann sig knúinn til aðgerða. Hann réttir nú fram hjálparhönd til að fólk geti lært að taka hið fullkomna klapp. Til hamingju Ísland," segir í fréttatilkynningu.

Einnig er hægt að hlusta á lagið á Spotify hjá DJ Muscleboy.


Hlustað á lagið hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner