Eins og Fótbolti.net greindi frá í vikunni þá fékk íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Már Sævarsson frí í vinnunni hjá Saltverk til að fara á HM. Birkir hóf störf þar í vetur eftir að hann flutti til Íslands og byrjaði að spila með Val.
Birkir mætir Lionel Messi og öðrum stórstjörnum argentínska landsliðsins á morgun í fyrsta leik Íslands á HM.
AP heimsótti Birki í vinnuna hjá Saltverk og gerði skemmtilegt innslag og grein sem má sjá hér að neðan.
„Þetta er eðlilegt fyrir Íslending. Þetta er eðlilegra heldur en að fara á HM allavega. Að vinna allan daginn og fara svo á æfingu," sagði Birkir meðal annars.
COLUMN: There's a lot to love about Iceland's #WorldCup team, writes @johnleicester -- including a defender who works in a salt-packing factory https://t.co/BTEVX7lI0X pic.twitter.com/664gAdDFyv
— AP Sports (@AP_Sports) June 15, 2018
Athugasemdir