Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 15. júní 2018 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rashford æfir með liðsfélögunum í dag
Mynd: Getty Images
Marcus Rashford mun byrja að æfa aftur með enska landsliðshópnum í dag.

Rashford hefur misst af æfingum síðustu daga vegna hnémeiðsla. Hann æfði einn í gær á hóteli enska landsliðsins en hann mun koma aftur til móts við hópinn í dag að sögn enskra fjölmiðla.

Þetta eru góðar fréttir fyrir England þar sem Rashford leit hrikalega vel út í vináttulandsleik á dögunum.

Sjá einnig:
Rashford með magnað mark í sigri Englands

Fyrsti leikur Englands á HM er á mánudaginn við Túnis og hefst sá leikur klukkan 18:00 að íslenskum tíma. England er að auki með Belgíu og Panama í riðli.



Athugasemdir
banner
banner