Varnarmaðurinn Mats Hummels gæti verið á leið aftur í Borussia Dortmund frá Bayern München.
Þýski fjölmiðillinn Bild sagði frá því að viðræður á milli Dortmund og Bayern séu hafnar og Sky tók síðar undir þetta.
Bayern er að endurnýja hópinn hjá sér fyrir næsta tímabil og hinn þrítugi Hummels gæti verið á leið aftur til Dortmund þar sem hann spilaði svo vel frá 2008 til 2016.
Samkvæmt Torben Hoffman hjá Sky í Þýskalandi eru viðræður langt komnar. „Hummels er við það að ganga aftur í raðir Dortmund. Viðræðurnar eru komnar mjög langt," skrifaði hann.
Hoffman sagði jafnframt að kaupverðið yrði í kringum 30 milljónir evra.
Wir können die Infos bestätigen! @matshummels @FCBayern steht kurz vor einer Rückkehr zum @bvb
— Torben Hoffmann (@Sky_Torben) June 14, 2019
Die Verhandlungen sind sehr weit fortgeschritten! Unterschrift noch nicht erfolgt!@SkySportNewsHD @SkySportDE
Athugasemdir