Heimild: Goal
Ryan Fraser leikmaður Bournemouth hefur verið orðaður við Arsenal að undanförnu.
Skotinn er núna með landsliðinu og gaf Bournemouth út tilkynningu um stöðu hans hjá klúbbnum.
#afcb club statement:https://t.co/U6IyrvudtQ
— AFC Bournemouth (@afcbournemouth) June 15, 2019
Í tilkynningunni segir félagið að Fraser hafið beðið um að bíða með samningsviðræður til að hann gæti einbeitt sér að fótboltanum.
„Það hefur verið langtímasamningur á borðinu fyrir Fraser í langan tíma."
Fraser á 12 mánuði eftir af samning sínum hjá félaginu og verður að koma í ljós hvað hann ætlar sér að gera.
Fraser átti frábært tímabil með Bournemouth og skoraði sjö mörk og lagði upp 13.
Athugasemdir