Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 15. júní 2021 11:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
FH og Stjarnan mæta írskum liðum - Blikar byrja í Lúxemborg
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik, FH og Stjarnan munu taka þátt í Sambandsdeildinni í júlí. FH endaði í 2. sæti í fyrra, Stjarnan í 3. sæti og Breiðablik í 4. sæti.

Bæði FH og Stjarnan munu mæta írskum liðum. FH mætir Sligo Rovers og Stjarnan mætir Bohemian. Íslensku liðin leika fyrri leikina sína á heimavelli.

Fyrri leikurinn fer fram 8. júlí og seinni leikurinn fer fram 15. júlí.

Sligo Rovers endaði í 4. sæti deildarinnar í fyrra og Bohemians endaði í 2. sæti.

Breiðablik mætir svo Racing FC Union Lëtzebuerg frá Lúxemborg og byrjar einvígið á útivelli.

Drátturinn var mikið púsluspil og fór fram í Nyon í Sviss.
Athugasemdir
banner
banner
banner