Marcelo Brozovic og félagar hans í króatíska landsliðinu mæta Frakklandi í dag í úrslitaleik Heimsmeistaramótsins í Rússlandi.
Brozovic hefur sjálfur átt mjög gott mót en hann leikur með Inter á Ítalíu óvissa hefur verið með framtíð hans en umboðsmaður hans segir hann ánægðan hjá Inter og að hann hefði jafnvel áhuga á að skrifa undir nýjan samning.
„Marcelo (Brozovic) er ánægður hjá Inter og mun mögulega skrifa undir nýjan og betri samning fljótlega."
„Enn svo er auðvitað alltaf möguleiki á að ensk lið eða önnur borgi þessa klásúlu sem hann er með í samningi sínum sem hljóðar uppá 50 milljónir evra. Það er allt rólegt eins og er, hann er ánægður hjá Inter en við förum í frí eftir HM og ef einhver vill ræða við okkur á þeim tíma þá verðum við tilbúnir í að ræða við viðkomandi," sagði umboðsmaður Brozovic að lokum
Athugasemdir