banner
   sun 15. júlí 2018 09:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Effenberg: Myndi alltaf velja Mandzukic fram yfir Neymar
Mynd: Getty Images
Það er stór dagur framundan á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi í dag en úrslitin ráðast þegar Frakkland og Króatía mætast í úrslitaleik mótsins klukkan 15:00.

Leikmaðurinn sem skaut Króatíu í úrslitin heitir Mario Mandzukic en hann skoraði sigurmark Króata gegn Englendingum. Þjóðverjinn Stefan Effenberg sem lék meðal annars með Bayern Munchen á ferli sínum er mikill aðdáandi Króatans.

„Ég hef aldrei skilið afhverju Bayern Munchen seldi hann. Mandzukic er einn af þremur bestu framherjum í heiminum fyrir mér. Hann vinnur svo vel fyrir liðið og svo skoraði hann auðvitað sigurmarkið gegn Englandi."

„Ef hann væri ekki svona gamall myndi verðið á honum vera um 200 milljónir evra, ég myndi alltaf velja hann fram yfir Neymar,"
sagði Effenberg.
Athugasemdir
banner
banner
banner