Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 15. júlí 2018 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Lloris gerðist sekur um hræðileg mistök
Mynd: Getty Images
Frakkland og Króatía eru að gefa fótboltaunnendum frábæran úrslitaleik á stærsta sviðinu, Heimsmeistaramótinu.

Þegar þessi frétt er skrifuð er Frakkland 4-2 yfir og um 20 mínútur til leiksloka.

Frakkland komst í 4-1 með marki Kylian Mbappe og virtist vera að ganga algjörlega frá leiknum. Hugo Lloris, markvörður og fyrirliði Frakka, ákvað hins vegar að gefa Króatíu leið aftur inn í leikinn.

Hann ætlaði að reyna að sóla Mario Mandzukic inn í teignum en það gekk ekki alveg upp hjá honum og kostaði marki.

Króatar hafa stundarfjórðung plús uppbótartíma til að skora tvö mörk til viðbótar.

Smelltu hér til að sjá myndband af markinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner