Bayern Munchen hefur ákveðið að hætta við að reyna að fá Leroy Sane leikmann Manchester City í sínar raðir í sumar. Sky í Þýskalandi segir frá þessu.
Sane hefur verið efstur á óskalista Bayern en félagið hafði vonast eftir þýski kantmaðurinn myndi óska eftir sölu frá City í sumar.
Sane hefur verið efstur á óskalista Bayern en félagið hafði vonast eftir þýski kantmaðurinn myndi óska eftir sölu frá City í sumar.
Svo fór ekki en að auki er talið að Sane myndi kosta meira en 100 milljónir punda og það er Bayern ekki til í.
Bayern ætlar að snúa sér aftur að Callum Hudson-Odoi leikmanni Chelsea og Yannick Carrasco leikmanni Dalian Yifang í Kína.
Athugasemdir