Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 15. júlí 2019 18:37
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Víkings R. og Fylkis: Stefán Logi í markinu
Stefán Logi Magnússon kemur beint í búrið
Stefán Logi Magnússon kemur beint í búrið
Mynd: Twitter
Víkingur R. og Fylkir eigast við í 12. umferð Pepsi Max-deildar karla í kvöld en leikurinn fer fram á Víkingsvellinum klukkan 19:15. Stefán Logi Magnússon er í markinu hjá Fylkismönnum.

Fjögur stig skilja liðin að en Víkingar eru 11. sæti með 11 stig á meðan Fylkismenn eru með 15 stig.

Smelltu hér til að lesa textalýsingu frá leiknum

Stefán Logi Magnússon gekk í raðir Fylkis á dögunum og byrjar í markinu í dag. Hann kemur inn fyrir Kristófer Leví Sigtryggsson og þá koma þeir Ragnar Bragi Sveinsson og Ólafur Ingi Skúlason einnig inn.

Hákon Ingi Jónsson og Helgi Valur Danielsson fara á bekkinn. Víkingar gera eina breytingu en Örvar Eggertsson kemur inn fyrir Viktor Örlyg Andrason.

Byrjunarlið Víkings R.
1. Þórður Ingason (m)
6. Halldór Smári Sigurðsson
8. Sölvi Ottesen (f)
9. Erlingur Agnarsson
15. Kwame Quee
18. Örvar Eggertsson
20. Júlíus Magnússon
21. Guðmundur Andri Tryggvason
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
24. Davíð Örn Atlason
27. Kári Árnason

Byrjunarlið Fylkis:
32. Stefán Logi Magnússon (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
5. Orri Sveinn Stefánsson
6. Sam Hewson
7. Daði Ólafsson
11. Valdimar Þór Ingimundarson
16. Ólafur Ingi Skúlason (f)
19. Ragnar Bragi Sveinsson
20. Geoffrey Castillion
21. Kolbeinn Birgir Finnsson
23. Ari Leifsson
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner