Það er nóg um að vera í íslenska boltanum í dag. Leikið er í bæði Pepsi Max-deild karla og kvenna. Einnig er leikur á dagskrá í Inkasso-deild kvenna og einn í fjórðu deild karla.
ÍA heimsækir Grindavík í Pepsi Max-deildinni í kvöld. Með sigri ÍA kemst liðið upp í 2. sæti deildarinnar á nýjan leik. Grindavík hefur gert markalaust jafntefli í tveimur síðustu leikjum sínum.
Víkingur R. og Fylkir eigast við í Fossvoginum en fjórum stigum munar á liðunum fyrir leik kvöldsins. Bæði lið koma inn í leikinn með tap á bakinu. Víkingur R. tapaði naumlega fyrir FH í síðustu umferð og ÍA vann Fylki.
Í Pepsi Max-deild kvenna eru þrír leikir á dagskrá. Það er stórleikur á Akureyri þegar Þór/KA fær Val í heimsókn í fyrsta leik dagsins. Valskonur á toppi deildarinnar en Þór/KA í þriðja sæti.
Spútnik lið Selfoss fær Stjörnuna í heimsókn á JÁVERK-völlinn og á sama tíma mætast Keflavík og Fylkir í sex stiga leik.
Hér að neðan má sjá leiki dagsins í íslenska boltanum og leikstaði.
Pepsi Max-deild karla
19:15 Víkingur R.-Fylkir (Víkingsvöllur)
19:15 Grindavík-ÍA (Mustad völlurinn)
Pepsi-Max deild kvenna
18:00 Þór/KA-Valur (Þórsvöllur)
19:15 Keflavík-Fylkir (Nettóvöllurinn)
19:15 Selfoss-Stjarnan (JÁVERK-völlurinn)
Inkasso deild kvenna
19:15 ÍA-Augnablik (Norðurálsvöllurinn)
4. deild karla - C-riðill - 4. deild karla
20:00 Fenrir-Álafoss (Hertz völlurinn)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir