Kári Árnason, varnarmaður Víkings, var svekktur með jafntefli í sínum fyrsta heimaleik í Víkinni síðan 2004. Víkingar tóku á móti Fylki í Pepsi Max deildinni og endaði leikurinn 1-1. Kári segir að færin sem Víkingar klúðruðu í leiknum hafi kostað þá stigin þrjú. Þrátt fyrir svekkjandi úrslit var Kári ánægður að vera mættur aftur á sinn gamla heimavöll.
„Tilfinningin er mjög góð og þetta var gaman en auðvitað ætluðum við okkur sigur í þessum leik. Við erum að fara inn í mjög erfitt prógramm og það hefði verið gott að byrja það á sigri. Það hafðist ekki og þetta er svolítið same old story. Við sköpum nóg af færum til að vinna leikinn en gerum það ekki" Sagði Kári.

Nánar er rætt við Kára í viðtalinu hér fyrir ofan. Þar ræðir Kári heimkomu sína og segir álit sitt á Pepsi Max deildinni.
Athugasemdir