Útvarpsmaðurinn á FM957 og þáttastjórnandi Körfuboltakvölds á Stöð2 Sport, Kjartan Atli Kjartansson gerði sér lítið fyrir og skoraði eitt af fjórum mörkum Álftanes í 4-0 sigri liðsins á Skallagrími í 3. deildinni í gærkvöldi.
Herra Brennslan ýtti honum í átt að fótboltanum
Þetta var fyrsta mark Kjartans frá því hann skoraði með Álftanesi í 4. deildinni sumarið 2013. Hann hefur komið við sögu í tveimur leikjum liðsins í 3. deildinni í sumar en þar áður lék hann tvo leiki með liðinu sumarið 2015.
Herra Brennslan ýtti honum í átt að fótboltanum
Þetta var fyrsta mark Kjartans frá því hann skoraði með Álftanesi í 4. deildinni sumarið 2013. Hann hefur komið við sögu í tveimur leikjum liðsins í 3. deildinni í sumar en þar áður lék hann tvo leiki með liðinu sumarið 2015.
„Við, Hjörvar og Rikki fórum í Herra Brennslunnar og klæddum okkur úr fyrir framan alþjóð. Þá þurfti maður að koma sér í stand og ég hugsaði að þegar ég væri kominn í þokkalegt stand þá myndi ég nýta mér það til að spila fótbolta," sagði Kjartan Atli þegar hann var beðinn um að útskýra ástæðuna fyrir því að hann hafi ákveðið að taka slaginn með Álftanes í sumar.
„Ég er búinn að vera sprikla í fótbolta 1-2 sinnum í viku og þá hugsaði ég mér að ég gæti alveg látið á það reyna að fara í 3. deildina."
Kjartan segist hafa haft samband við þjálfara liðsins, þá Baldvin Sturluson og Arnar Má Björgvinsson. Hann segir að hugsunin til að byrja með hafi einungis verið að sprikla með á æfingum. „Ég sá síðan að ég gat nú eflaust hjálpað liðinu í leikjum," sagði Kjartan og bætir við að átak Brennslubræðra hafi ýtt honum í átt að fótboltanum.
Kjartan Atli hefur skorað 64 meistaraflokks mörk á ferlinum í 121 leik. Sem gerir rúmlega mark í öðrum hvorum leik.
„Mér finnst ég aldrei vera með í leikjum nema ég skori og finnst ég gera lítið gagn nema ég skori. Síðan fannst mér ég staðfesta það í gær þegar ég skoraði, þó svo að það hafi verið mark sem hafði ekkert áhrif á leikinn."
Auðvelt að efast um sjálfan sig
Álftanes er í 7. sæti 3. deildarinnar með 15 stig. Eftir góða byrjun á tímabilinu komu sjö leikir í röð þar sem Álftanes náði ekki í sigur. Það var á þeim tíma sem Kjartan Atli byrjaði að æfa með liðinu.
„Ég var farinn að hugsa hvort ég væri að skemma eitthvað með því að vera í liðinu. Liðið var að tapa fullt af leikjum í röð og þetta var brekka. Það er rosalega auðvelt að efast um sjálfan sig þegar maður tapar fullt af leikjum í röð. Eftir tapið gegn KH sem þá var neðsta lið deildarinnar þá bremsaði liðið sig af í miðri brekku og setti í fyrsta gír og spólaði aftur upp. Síðustu tveir sigrar hafa verið algjörir iðnaðarsigrar og gríðarlega mikilvægir."
Kjartan Atli lék sína fyrstu leiki með Álftanesi sumarið 2007 þegar meistaraflokksliðið var stofnað. Þar var Kjartan Atli fyrirliði liðsins.
„Mér þykir gríðarlega vænt um félagið. Eg vil sjá liðið festa sig í sessi í 3. deildinni og síðan er hægt að vinna með það til frambúðar. Fyrst og fremst vil ég ekki sjá liðið fara aftur niður í 4. deildina," sagði Kjartan Atli sem vonast til að fá fleiri tækifæri í sumar.
„Markið hlýtur að setja pressu á þjálfaranna að spila manni. Framherjar sem koma af bekknum vilja skora mörk til að sanna sig. Nú er það fyrsta komið," sagði Kjartan Atli og setur þar með pressu á þjálfarateymið að velja hann í byrjunarliðið fyrir næsta leik. Hann segir að hann hafi pælt í því að fara frekar í 4. deildina í sumar til að fá fleiri mínútur og eiga meiri möguleika að skora fleiri mörk.
„Mér fannst þetta skemmtilegra verkefni. Ég þekki alla í kringum félagið og finnst gaman að vera á Álftanesi. Líka það að ef maður getur eitthvað hjálpað þeim með nærveru sinni þá er það geggjað. Mér finnst þetta ótrúlega gaman," sagði Kjartan sem vonast til að geta haldið áfram að spila knattspyrnu á næstu árum þó svo að skrokkurinn láti vita af sér eftir æfingar og leiki.
Gaman að vera Álftnesingur
„Ég var alltaf með einhvern draum um að skora 100 mörk í meistaraflokki en þá þyrfti maður kannski að vera í einhver tíu ár í viðbót. Mér langar að halda áfram og ég geri mitt besta til þess," sagði Kjartan Atli sem hætti á sínum tíma vegna meiðsla.
„Ég hætti í körfubolta vegna meiðslanna og á sama tíma hætti ég þá í fótboltanum. Síðan var ég kominn í frekar slappt form á tímabili en núna er maður kominn í ágætisstand. Mér líður vel í löppunum og finn ekkert fyrir meiðslunum núna, er á meðan er," sagði Kjartan Atli sem leikur einnig með körfuknattleiksliði félagsins sem vann sér inn þátttökurétt í 1. deildinni fyrir næsta vetur. Hann segist vera spenntur fyrir því verkefni.
„Justin Shouse er mættur og fleiri tilkynningar á leiðinni. Það er gaman að vera Álftnesingur," sagði Kjartan Atli að lokum.
Athugasemdir