Manchester City hefur átt í miklu basli með flug til Shanghai í Kína fyrir æfingamót sem hefst þar á miðvikudaginn.
Manchester City átti upphaflega að fljúga til Kína á laugardaginn en þá komu upp vandræði með flugvélina sem liðið átti að ferðast með.
Í kjölfarið var áætlað að fljúga til Kína í gær en þá kom aftur babb í bátinn.

Lið Manchester City er því ennþá í Manchester en vonir standa til að hægt verði að fljúga í dag.
Lið Manchester lendir þá á þriðjudagsmorgni í Kína og hefur rétt rúman sólarhring til að undirbúa sig fyrir fyrsta leik gegn West Ham á miðvikudaginn.
Athugasemdir