Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 15. júlí 2019 14:00
Magnús Már Einarsson
Mason Mount framlengir við Chelsea
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn ungi Mason Mount hefur framlengt samning sinn við Chelsea til ársins 2024.

Hinn tvítugi Mount var á láni hjá Derby á síðasta tímabili þar sem hann spilaði undir stjórn Frank Lampard sem var að taka við Chelsea.

„Þetta er augnablik sem ég fyllir mig og fjölskylduna stolti," sagði Mount.

„Ég kom til félagsins þegar ég var sex ára og það var alltaf markmið mitt að spila með aðalliðinu einn daginn. Ég hlakka til tímabilsins og ég ætla að leggja hart að mér til að standa mig vel með Chelsea."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner