Símamótið fór fram um helgina og hér að neðan má sjá myndir Eyjólfs Garðarssonar frá úrslitaleik mótsins þar sem Breiðablik 1 vann Hauka 1 með tveimur mörkum gegn einu. Símamótið var haldið fyrst haldið 1985 og var þetta því 35. mótið í röðinni. Mótið er fyrir 5., 6. og 7. flokk kvenna, keppendur voru um 2.000 og er stærsta knattspyrnumótið á landinu. Allir leikir í mótinu fóru fram á völlum á félagssvæði Breiðabliks.
Athugasemdir