Hólmfríður Magnúsdóttir gerði tvö mörk er Selfoss vann Stjörnuna 3-0 í Pepsi Max-deild kvenna í kvöld.
Stjarnan var auðveld bráð fyrir Selfoss. Hólmfríður Magnúsdóttir kom Selfyssingum yfir í upphafi síðari hálfleiks er hún skoraði af stuttu færi. Tuttugu mínútum síðar gerði Magdalena Anna Reimus annað markið.
Hólmfríður gulltryggði svo sigurinn á 82. mínútu með góðu skallamarki. Lokatölur 3-0 og Selfoss í 4. sæti með 16 stig.
Keflavík heldur svo áfram að heilla en liðið vann Fylki 2-0. Sophie McMahon Groff gerði fyrra markið á 39. mínútu áður en hin unga og efnilega Sveindís Jane Jónsdóttir bætti við öðru á 59. mínútu.
Þriðji sigurinn í síðustu fjórum leikjum og Keflavík komið með 9 stig og komið upp í 7. sæti deildarinnar.
Úrslit og markaskorarar:
Keflavík 2 - 0 Fylkir
1-0 Sophie Mc Mahon Groff ('39 )
2-0 Sveindís Jane Jónsdóttir ('59 )
Selfoss 3 - 0 Stjarnan
1-0 Hólmfríður Magnúsdóttir ('48 )
2-0 Magdalena Anna Reimus ('68 )
3-0 Hólmfríður Magnúsdóttir ('82 )
Athugasemdir