Christian Pulisic mun hefja æfingar með Chelsea á morgun, þriðjudag.
Búist var við því að Pulisic myndi hefja æfingar með Chelsea eitthvað síðar þar sem hann lauk keppni í Gullbikarnum með bandaríska landsliðinu fyrir átta dögum síðan.
Búist var við því að Pulisic myndi hefja æfingar með Chelsea eitthvað síðar þar sem hann lauk keppni í Gullbikarnum með bandaríska landsliðinu fyrir átta dögum síðan.
Bandaríska liðið fór alla leið í úrslitaleikinn en tapaði þar fyrir Mexíkó, 1-0. Pulisic var einn af betri mönnum liðsins á mótinu, með þrjú mörk og þrjár stoðsendingar.
„Þetta er stutt frí fyrir hann en hann tók þessa ákvörðun. Hann vill komast á fullt sem allra fyrst, ég er mjög ánægður með það," sagði Frank Lampard, nýráðinn knattspyrnustjóri Chelsea.
Chelsea heldur nú til Japan þar sem að liðið mun leika nokkra æfingaleiki, til dæmis gegn Barcelona.
Athugasemdir