Fjögur félög vilja fá miðjumanninn Jean Michael Seri í sínar raðir frá Fulham samkvæmt frétt Sky Sports.
Hinn 27 ára gamli Seri vill fara frá Fulham eftir fall úr ensku úrvalsdeildinni.
Galatasaray, Napoli, Roma og AC Milan hafa öll áhuga á honum.
Hinn 27 ára gamli Seri vill fara frá Fulham eftir fall úr ensku úrvalsdeildinni.
Galatasaray, Napoli, Roma og AC Milan hafa öll áhuga á honum.
Seri er sjálfur í sumarfríi en hann ætlar að skoða kostina sem eru í boði næstu dagana.
Fulham keypti Seri síðastliðið sumar og miklar vonir voru bundnar við hann. Hann náði hins vegar ekki að bjarga liðinu frá falli.
Athugasemdir