Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 15. júlí 2019 13:30
Magnús Már Einarsson
Swansea hafnar mettilboði frá Sheffield United í McBurnie
Mynd: Getty Images
Swansea hefur hafnað fimmtán milljóna punda tilboði frá nýliðum Sheffield United í framherjann Oli McBurnie.

Hinn 23 ára gamli McBurnie skorað 24 mörk með Swansea á síðasta tímabili þegar liðið endaði í tíunda sæti í Championship deildinni.

Talið er að Swansea vilji fá meira en tuttugu milljónir punda fyrir McBurnie.

Sheffield United er með veskið á lofti þessa dagana en framherjinn Callum Robinson varð á dögunum dýrastur í sögu félagsins þegar hann kom frá Preston á átta milljónir punda.

Sheffield United er tilbúið að borga mun meira fyrir McBurnie en spurning er hvort félagið komi með nýtt tilboð í hann á næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner
banner