mán 15. júlí 2019 13:52
Arnar Daði Arnarsson
Þorvaldur Örlygs gerir tvær breytingar á U18
Arnór Gauti hefur verið kallaður inn í U18.
Arnór Gauti hefur verið kallaður inn í U18.
Mynd: Raggi Óla
Þorvaldur Örlygsson landsliðsþjálfari U18 karla hefur kallað Arnór Gauta Jónsson leikmann Aftureldingu og Eyþór Aron Wöhler leikmann ÍA í hópinn fyrir leikina tvo gegn Lettlandi.

Jón Gísli Eyland Gíslason og Valgeir Valgeirsson verða ekki með liðinu. Jón Gísli hefur verið að spila síðustu leiki með ÍA í Pepsi Max-deildinni og þá hefur Valgeir Valgeirsson verið í lykilhlutverki hjá HK í síðustu leikjum. Hann skoraði til að mynda sigurmarkið fyrir HK gegn KA í gærkvöldi.

Arnór Gauti hefur leikið alla leiki Aftureldingar í Inkasso-deildinni í sumar og hann missir þar með af leik gegn Þór sem fram fer næstkomandi laugardag.

Báðir leikir U18 ára landsliðsins fara fram ytra. Sá fyrri fer fram þann 19. júlí og sá síðari 21. júlí.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner