Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 15. júlí 2021 17:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Stjörnunnar í Dublin: Casper Sloth byrjar
Casper Sloth í leik með danska landsliðinu.
Casper Sloth í leik með danska landsliðinu.
Mynd: EPA
Stjarnan á erfitt verkefni fyrir höndum í Írlandi í Sambandsdeildinni í kvöld. Stjarnan sækir Bohemian heim á þjóðarleikvangi Írlands.

Fyrri leikur liðanna endaði með 1-1 jafntefli. Ef leikurinn í kvöld endar með jafntefli, þá verður framlengt.

„Þetta verður 50/50 leikur úti. Það er samt smá svekkjandi að þetta endaði í jafntefli því við spiluðum ágætis fyrri hálfleik fannst mér," sagði Eyjólfur Héðinsson, leikmaður Stjörnunnar, eftir jafnteflið á heimavelli.

Stjarnan gerir tvær breytingar frá fyrri leiknum. Einar Karl Ingvarsson og Eggert Aron Guðmundsson detta út úr liðinu. Inn koma Daníel Laxdal og Casper Sloth. Danski miðjumaðurinn er að byrja sinn fyrsta leik fyrir Stjörnuna.

Hér að neðan má sjá byrjunarlið Stjörnumanna.

Byrjunarlið Stjörnunnar:
1. Haraldur Björnsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson (f)
6. Magnus Anbo
9. Daníel Laxdal
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
12. Heiðar Ægisson
20. Eyjólfur Héðinsson
21. Elís Rafn Björnsson
22. Emil Atlason
23. Casper Sloth


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner