Samkvæmt heimildum Sky í Þýskalandi hefur Chelsea reynt að krækja í Erling Braut Haaland, leikmann Dortmund, og hefur boðið tvo leikmenn í skiptum fyrir norska framherjann.
Tammy Abraham og Callum Hudson-Odoi eru þeir tveir leikmenn sem um ræðir.
Tammy Abraham og Callum Hudson-Odoi eru þeir tveir leikmenn sem um ræðir.
Haaland er sagður kosta um 150 milljónir punda, Chelsea bauð leikmennina og dágóða summu með en þrátt fyrir það neitaði Dortmund tilboðinu.
Haaland er með riftunarákvæði í samningi sínum við Dortmund sem virkjast næsta sumar. Það er talið nema um 70 milljónum punda.
Chelsea vill selja Abraham í sumar og eru Aston Villa og West Ham sögð hafa áhuga.
Athugasemdir