Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 15. júlí 2021 09:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þórir Jóhann búinn að semja við Lecce
Þórir gegn Sligo Rovers fyrir viku síðan
Þórir gegn Sligo Rovers fyrir viku síðan
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórir Jóhann Helgason er að ganga í raðir Lecce frá FH.

Þórir mun mæta til Lecce í kvöld og fer í læknisskoðun á morgun samkvæmt færslu á heimasiðu félagsins.

Búið er að ná samkomulagi um fjögurra ára samning með möguleika á fimmta árinu.

Samningur Þóris við FH átti að renna út í lok árs en hann er tvítugur miðjumaður sem kom til FH frá Haukum árið 2018.

Þórir verður 21 árs í september. Hann á að baki einn A-landsleik og sextán leiki fyrir yngri landsliðin.

FH mætir Sligo Rovers í Sligo í dag. Það er seinni leikur liðanna í Sambandsdeildinni. Sögur hafa heyrst að Þórir Jóhann hafi ekki farið með til Írlands í leikinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner