Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 15. ágúst 2018 22:47
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: Reynir og Kórdrengir vinna sína riðla
Magnús Þórir Matthíasson er næstmarkahæstur í B-riðli með 12 mörk í 11 leikjum.
Magnús Þórir Matthíasson er næstmarkahæstur í B-riðli með 12 mörk í 11 leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Reynir Sandgerði og Kórdrengir eru búnir að vinna sína riðla í 4. deild karla.

Reynir gerði jafntefli við Skallagrím í toppslag B-riðils þar sem Magnús Þórir Matthíasson hélt uppteknum hætti og skoraði mark Reynis. Hann er kominn með tólf mörk í deildinni í sumar.

Elliði gat komist í annað sæti með sigri gegn Hvíta riddaranum en lenti þremur mörkum undir á heimavelli og náði ekki að koma til baka þrátt fyrir tvennu frá Guðna Rúnari Ólafssyni á lokakaflanum.

Kórdrengir unnu þá D-riðilinn með auðveldum 4-1 sigri á Létti.

B-riðill:
Skallagrímur 1 - 1 Reynir Sandgerði
0-1 Magnús Þórir Matthíasson ('46)
1-1 Ingvi Þór Albertsson ('50)

Elliði 2 - 3 Hvíti riddarinn
0-1 Guðmundur Kristinn Pálsson ('16)
0-2 Eiríkur Þór Bjarkason ('48)
0-3 Einar Marteinsson ('62)
1-3 Guðni Rúnar Ólafsson ('75, víti)
2-3 Guðni Rúnar Ólafsson ('80)
Rautt spjald: Birgir Örn Birgisson, Hvíti ('90)

D-riðill:
Kórdrengir 4 - 1 Léttir
1-0 Axel Andri Antonsson ('10)
2-0 Guðmundur Atli Steinþórsson ('19)
2-1 Róbert Rúnar Jack ('27, sjálfsmark)
3-1 Lassana Drame ('87)
4-1 Hjörtur Júlíus Hjartarson ('90)

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner