Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 15. ágúst 2018 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Castillejo og Laxalt mættir til Milan - Montolivo neitar að fara
Mynd: Getty Images
Samu Castillejo og Diego Laxalt eru báðir mættir til Mílanó þar sem þeir gangast undir læknisskoðun hjá AC Milan á morgun.

Báðir eru þeir kantmenn og greiðir Milan um 18 milljónir evra fyrir hvorn þeirra.

Castillejo kemur frá Villarreal á meðan Laxalt hefur leikið fyrir Genoa undanfarin ár. Báðir voru þeir eftirsóttir víða um Evrópu en ákváðu að ganga til liðs við Milan.

Milan vill bæta við sig miðjumanni fyrir tímabilið en getur það ekki án þess að losa sig við Riccardo Montolivo sem vill ekki yfirgefa félagið. Eiginkona Montolivo er ólétt og vilja þau hjónin ekki yfirgefa Mílanó.

Samningur Montolivo, sem er 33 ára miðjumaður á góðum launum, rennur út næsta sumar. Hann spilaði 24 leiki á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner