mið 15. ágúst 2018 08:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Gabi sár yfir því að Courtois hafi farið til Real Madrid
Gabi ólst upp hjá Atletico og spilaði með þeim í mörg ár.
Gabi ólst upp hjá Atletico og spilaði með þeim í mörg ár.
Mynd: Getty Images
Fyrrum fyrirliði Atletico Madrid, Gabi Fernandez segir að hann sé sár yfir því að fyrrum samherji hans hjá Atletico hafi farið til erkifjendanna í Real Madrid.

Courtois gekk til liðs við Real frá Chelsea fyrir 35 milljónir punda í síðustu viku og reitti aðdáendur Atletico til reiði eins og áður hefur komið fram.

Gabi spilar nú með Al-Sadd en var áður hjá Atletico þar sem hann vann fjóra titla á þremur árum með Courtois er markmaðurinn var á láni hjá félaginu. Hann segir að það verði skrítið að sjá hann spila með Real.

Þetta er sárt. Hann hefur spilað með þér, unnið titla, þetta er skrýtið. Þetta er meira en bara sárt, þetta er furðulegt,” sagði Gabi.

Cortouis getur því reiknað með að fá ansi harkalegar móttökur þegar hann mætir á heimavöll Atletico Madrid í vetur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner