Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 15. ágúst 2018 10:30
Magnús Már Einarsson
Godin segist ekki hafa nýtt sér áhuga Manchester United
Ákvað að vera áfram hjá Atletico Madrid.
Ákvað að vera áfram hjá Atletico Madrid.
Mynd: Getty Images
Diego Godin, varnarmaður Atletico Madrid, hefur blásið á sögusagnir þess efnis að hann hafi nýtt sér áhuga frá Manchester United til að fá nýjan og betri samning hjá Atletico.

United reyndi að krækja í Godin fyrir lok félagaskiptagluggans á Englandi í síðustu viku en Úrúgvæinn afþakkaði. Hann segir persónulegar ástæður vera á bakvið þá ákvörðun.

Á dögunum fréttir af því að Godin hefði gert nýjan samning við Atletico en hann segir það ekki vera rétt.

„Ég er ekki búin að framlengja. Ég hef fengið tilboð en ég hef ákveðið að vera áfram hjá Atletico af persónulegum ástæðum," sagði Godin.

„Ég er ekki búinn að framlengja samninginn minn. Ég sá það í fréttunum en ég veit ekki hvaðan það kom."
Athugasemdir
banner