Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 15. ágúst 2018 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Juventus neitar að láta Kean frá sér
Mynd: Getty Images
Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Ítalíumeistarar Juventus ætli hvorki að lána né selja Moise Kean í sumar.

Kean var aðeins 16 ára gamall þegar hann spilaði sinn fyrsta Serie A leik fyrir Juve og nokkrum mánuðum síðar fékk hann að spreyta sig í Meistaradeildinni.

Kean skoraði eitt mark í fjórum leikjum fyrir Juve og var lánaður til Verona tímabilið eftir. Þar gerði hann fjögur mörk í 19 leikjum.

Nú er Kean orðinn 18 ára gamall og vilja félög á borð við Marseille, Nice og Borussia Dortmund fá hann til sín en Juve neitar að láta hann frá sér.

Sport Mediaset og SportItalia segja Juve vilja halda Kean þar til í janúar hið minnsta.
Athugasemdir
banner
banner
banner