Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 15. ágúst 2018 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Walker hefur ekki áhyggjur af meiðslum De Bruyne
Mynd: Getty Images
Búist er við að Kevin De Bruyne verði frá góðu gamni í minnst tvo mánuði eftir að hafa meiðst á hægra hné á æfingu Manchester City.

Kyle Walker er góður félagi De Bruyne og telur City vera með nægilega sterkan leikmannahóp til að gera vel án miðjumannsins öfluga sem er lykilmaður bæði hjá City og belgíska landsliðinu.

„Kevin er frábær leikmaður og það er leiðinlegt að hann hafi meiðst á æfingu. Sem betur fer er hópurinn okkar meira en nægilega breiður, við erum með ótrúlegan hóp," sagði Walker við fréttamenn á frumsýningu All or Nothing, sem er heimildarmynd gerð af Amazon um Man City.

„Það er ekki hægt að treysta á einn leikmann í fótbolta. Þetta er liðsíþrótt og auðvitað er slæmt að missa svona góðan leikmann en við höfum meira en nóg af gæðamiklum leikmönnum sem geta fyllt í skarðið."
Athugasemdir
banner
banner
banner