Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA, er að verða pabbi í fyrsta sinn og fagnaði með viðeigandi hætti þegar hann skoraði í sigrinum gegn ÍA í gær.
Hann setti boltann innundir treyjuna og þumalinn upp í sig. Hann fagnaði eins þegar hann skoraði gegn FH á dögunum.
Hann setti boltann innundir treyjuna og þumalinn upp í sig. Hann fagnaði eins þegar hann skoraði gegn FH á dögunum.
„Ákvað þetta stuttu fyrir FH leikinn um daginn í Kaplakrika og gerði þetta þá. En síðan þurfti ég líka að gera þetta a heimavelli og með konuna i stúkunni," segir Hallgrímur í samtali við Fótbolta.net.
Hann og Jóndís Inga Hinriksdóttir eiga von á sínu fyrsta barni í janúar og Jóndís var meðal áhorfenda þegar KA vann 3-0 sigur gegn ÍA.
Sævar Geir Sigurjónsson tók meðfylgjandi myndir.
Athugasemdir