Öllum leikjum dagsins í Seria A á Ítalíu er lokið, en þrír leikir voru spilaðir í dag.
Dagurinn fór rólega af stað en þá tók Inter á móti Parma, sem hefur unnið sig upp hverja deildina á fætur annarri síðustu ár.
Ekkert var skorað í fyrri hálfleik og langt var liðið á seinni hálfleikinn þegar fyrsta og eina mark leiksins kom. Það var Federico Dimarco sem skoraði markið.
Parma vann þar með sinn fyrsta leik í Seria A og hefur jafnað Inter að stigum með 4 stig.
Mjög svipaða sögu má segja um leik Napoli og Fiorentina. Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik og þurfti að bíða fram á 79. mínútu eftir marki. Þar var Lorenzo Insigne að verki sem skoraði fyrir heimamenn.
Napoli kom sér þar með, að minnsta kosti tímabundið, í 2. sæti deildarinnar.
Síðasti leikur dagsins bauð upp á mun fleiri mörk en hinir tveir. Þá tóku Emil og félagar á móti Sampdoria.
Fabio Quagliarella skoraði eina mark fyrri hálfleiks á 10. mínútu.
Gianluca Caprari tvöfaldaði forystuna strax eftir hálfleik og aðeins nokkrum mínútum síðar skoraði Gregoire Defrel þriðja markið.
Emil Hallfreðsson kom inn á á 62. mínútu.
Gestirnir bættu tveimur mörkum við á síðustu tíu mínútunum og niðurlægingin fullkomnuð fyrir heimamenn.
Emil og félagar eru nú í 19. sæti, því næst neðsta, með eitt stig og markatöluna 0-10. Ef ekki væri fyrir þá staðreynd að 3 stig voru tekin af Chievo Verona þá væri Frosinone í því neðsta.
Inter 0 - 1 Parma
0-1 Federico Dimarco (79')
Napoli 1 - 0 Fiorentina
1-0 Lorenzo Insigne (79')
Frosinone 0 - 5 Sampdoria
0-1 Fabio Quagliarella (10')
0-2 Gianluca Caprari (47')
0-3 Gregoire Defrel (54')
0-4 Dawid Kownacki, víti (83')
0-5 Gregoire Defrel (86')
Athugasemdir