FH varð í fyrrakvöld bikarmeistari í 2. flokki kvenna eftir 3-1 sigur á Þór/KA í úrslitaleik í Kaplakrika. FH komst í 3-0 með mörkum frá Rannveigu Bjarnadóttur, Þóreyju Ósk Eyþórsdóttur og Helenu Ósk Hálfdánardóttur en María Catharina Ólafsdóttir Gros minnkaði muninn fyrir Akureyringa. Jóhannes Long tók þessar myndir á leiknum.
Athugasemdir