Oliver Sigurjónsson, miðjumaður Breiðabliks, tjáir sig á samfélagsmiðlum eftir niðurstöðu kvöldsins.
Oliver klúðraði spyrnu í vítaspyrnukeppninni í bikarúrslitunum en hann fékk gagnrýni fyrir aðhlaup sitt að spyrnunni. Stjarnan vann leikinn og er bikarmeistari.
Oliver var nefndur í liðnum 'vondur dagur' í skýrslu Egils Sigfússonar eftir leikinn.
„Þegar maður bregst sjálfum sér, liðsfélögum, starfsfólki og stuðningsmönnum hjá uppeldisfélaginu sem maður elskar á einni spyrnu, koma upp margar tilfinningar. Rosalega sárt," segir Oliver.
„Í mómentinu ákvað ég að taka á skarið, taka spyrnuna á þann hátt eins og geri alltaf en mér mistókst í þetta skiptið, því miður. Þakka stuðningsmönnum Blika fyrir frábæran stuðning og óska Stjörnunni til hamingju með bikarinn. Við komum til baka og vinnum bikar seinna."

Athugasemdir