lau 15. september 2018 13:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pochettino: Þeir voru betri en þetta var vítaspyrna
Mynd: Getty Images
„Þeir voru betri en við," sagði Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, eftir 2-1 gegn Liverpool í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar.

Tottenham minnkaði muninn á 92. mínútu og áður en Michael Oliver flautaði til leiksloka þá vildi Spurs fá vítaspyrnu. Smelltu hér til að sjá af hverju.

„Við kepptum og komumst nálægt því að jafna. Við hefðum átt að fá vítaspyrnu fyrir brot á Son undir lok leiksins. Þá hefðu úrslitin verið öðruvísi."

„Auðvitað er ég vonsvikinn með úrslitin en við verðum bara að halda áfram og bæta okkur. Það eru margir leikir framundan."

Tottenham er með níu stig eftir fimm leiki. Liðið hefur tapað tveimur leikjum í röð og er sem stendur í fimmta sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner