Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 15. september 2018 13:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu atvikið: Átti Tottenham að fá vítaspyrnu?
Mynd: Getty Images
Liverpool hafði betur gegn Tottenham þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Liverpool komst í 2-0 með mörkum frá Georginio Wijnaldum og Roberto Firmino.

Tottenham minnkaði muninn á 92. mínútu þegar Erik Lamela skoraði en áður en dómarinn flautaði af fékk Tottenham fínt færi. Son Heung-min, sem komið hafði inn á sem varamaður, komst þá í ákjósanlega stöðu en náði ekki að skjóta. Hann var stoppaður af Sadio Mane.

Son var ósáttur og vildi fá vítaspyrnu og hann virðist hafa eitthvað til síns máls því Mane fer klárlega í hann.

Er þetta vítaspyrna? Smelltu hér til að sjá atvikið.
Athugasemdir
banner
banner
banner