Grótta 8 - 0 Afturelding
1-0 Pétur Theódór Árnason ('6 )
2-0 Kristófer Melsted ('21 )
3-0 Pétur Theódór Árnason ('29 )
4-0 Kjartan Kári Halldórsson ('41 )
5-0 Pétur Theódór Árnason ('44 )
6-0 Pétur Theódór Árnason ('45 )
7-0 Gabríel Hrannar Eyjólfsson ('52 )
8-0 Kjartan Kári Halldórsson ('80 )
Lestu um leikinn
1-0 Pétur Theódór Árnason ('6 )
2-0 Kristófer Melsted ('21 )
3-0 Pétur Theódór Árnason ('29 )
4-0 Kjartan Kári Halldórsson ('41 )
5-0 Pétur Theódór Árnason ('44 )
6-0 Pétur Theódór Árnason ('45 )
7-0 Gabríel Hrannar Eyjólfsson ('52 )
8-0 Kjartan Kári Halldórsson ('80 )
Lestu um leikinn
Það voru ótrúleg úrslit í eina leik kvöldsins í Lengjudeildinni í kvöld þar sem Grótta gjörsamlega niðurlægði Aftureldingu.
Þetta var næst síðasti leikurinn í næst síðustu umferð deildarinnar.
Pétur Theódór Árnason, sem mun fara í Breiðablik eftir tímabilið, skoraði eftir sex mínútur. Áður en flautað var til hálfleiks hafði hann alls skorað fjögur mörk, en tvö þeirra komu á síðustu andartökum fyrri hálfleiksins.
Kristófer Melsted og Kjartan Kári Halldórsson skoruðu einnig fyrir Gróttu, og var staðan 6-0 í hálfleik!
Gabríel Hrannar Eyjólfsson gerði sjöunda markið snemma í seinni hálfleiknum og Kjartan Kári gerði sitt annað mark þegar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Hreint út sagt ótrúlegar tölur í þessum leik. Grótta er í fimmta sæti og Afturelding í níunda sæti.
Athugasemdir