Brasilíski sóknarmaðurinn Neymar er allt annað en sáttur við meðferðina sem hann fékk í 3-1 sigri Paris Saint-Germain á Maccabi Haifa í Meistaradeildinni í gær.
Neymar, sem hefur verið frábær í byrjun leiktíðar, skoraði þriðja og síðasta mark PSG í leiknum.
Hann tók eitt af sínum klassísku fögnum eftir að hann skoraði en fékk gula spjaldið fyrir.
Leikmaðurinn var hissa á að hafa fengið gula spjaldið.
„Það sem gerðist fyrir mig var sorglegt. Fótbolti er að verða leiðinlegur og við getum ekki fagnað. Þetta er ekki bara vanvirðing við mig heldur við fótboltann í heild sinni."
„Ég talaði við dómarann. Hann baðst afsökunar en núna er ég samt með þetta gula spjald. Þetta er vanvirðing í garð leikmanna. Dómarar eiga að vera þarna inná til að vernda okkur," sagði Neymar í lokin.
Athugasemdir