Vestri sem leikur í 2. deild karla framlengdi samninga við tvo leikmenn í gær en Sergine Fall og Hammed Lawal skrifuðu þá undir.
Fall er 24 ára Senegali sem kom frá Noregi í BÍ/Bolungarvík (Vestri í dag). Hann fór svo þaðan til ÍR en kom aftur fyrir tímabilið og gerði átta mörk í 2. deildinni.
Hann hefur verið í lykilhlutverki og mun leika með liðinu eitt tímabil til viðbótar í það minnsta. Sömu sögu má segja af Hammed Lawal en hann er 22 ára gamall Englendingur og hefur leikið með liðinu síðustu tvö tímabil.
Þetta eru gleðitíðindi fyrir Vestra sem rétt missti af sæti í Inkasso-deildina en liðið hafnaði í þriðja sæti aðeins stigi á eftir Gróttu og Aftureldingu.
Athugasemdir