Blaise Matuidi, leikmaður Juventus og franska landsliðsins, segir að Kylian Mbappe sé með svipaðan persónuleika og þeir allra bestu í heiminum.
Mbappe er ein skærasta stjarnan í knattspyrnuheiminum í dag en á síðasta ári fagnaði hann franska titlinum með Mónakó áður en hann var lánaður til Paris Saint-Germain. Hann var titilinn með liðinu og það stefnir í það sama á þessu tímabili.
Hann er með 13 mörk í 13 leikjum og vann þá HM með Frökkum í sumar. Matuidi talar vel um liðsfélaga sinn og líkir honum við menn á borð við Lionel Messi, Cristiano Ronaldo og Zlatan Ibrahimovic.
„Það er persónuleikinn hans. Það sýnir hvernig leikmaður hann er," sagði Matuidi.
„Hann er frábær leikmaður og mjög hæfileikaríkur. Frábærir leikmenn eru með frábæran persónuleika. Ég hef séð það með Zlatan eftir að hafa spilað með honum og ég sé það líka með Messi og Ronaldo," sagði Matuidi í lokin.
Athugasemdir